24.08.04 - 15:39
Magnús Már Einarsson
Bolton fær Kaku (Staðfest)

Boltonmenn hafa fengið liðsstyrk.


Boltonmenn hafa fengið liðsstyrk.

Bolton hefur samið við nígeríska landsliðsmanninn Blessing Kaku eftir að kappinn hafði verið til reynslu hjá liðinu. Hinn 26 ára gamli Kaku sem að hefur þetta líka skemmtilega nafn er níundi leikmaðurinn sem að Sam Allardyce fær til Bolton í sumar en Kaku kemur frá ísraelska liðinu Ashdod. Jay-Jay Okocha fyrirliði Bolton hefur hrósað landa sínum Kaku mikið og því verður spennandi að sjá hvernig hann mun standa sig á Englandi en líkt og Okocha þá er Kaku miðjumaður.
