24.11.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Bryan Robson til Bradford. (Staðfest)




Bradford staðfesti í morgun að Bryan Robson sé nýr stjóri liðsins. Robson sem er 46 ára er fyrrum fyrirliði enska landsliðsins. Hann stýrði seinast Middlesbrough en var rekinn frá þeim árið 2001. Aðstoðarmaður Bryans hjá Bradford verður Colin Todd en þeir eiga erfitt verk fyrir höndum þar sem að liðið er í næstneðsta sæti í 1.deild og á lítinn sem engan pening.
Robson var reyndar nánast búin að ganga frá samningum þess efnis að taka við nígeríska landsliðinu í haust en á seinustu stundu gekk það til baka.
