Lið vikunnar í enska - Markvörður tímabilsins til þessa

Markvörður: Konstantinos Tzolakis (Hull) - Ótrúlegt hvernig Hull vann Brighton og er Grikkinn ein helsta ástæðan fyrir því. Markvörður tímabilsins til þessa.

Mynd: EPA

Varnarmaður: James Hill (Bournemouth) - Eflaust með aukið sjálfstraust hafandi fengið fyrsta landsliðskallið með Englandi í liðnum glugga. Stóð vel fyrir sínu, hélt hreinu og lagði upp eitt í sigri liðsins á Nottingham Forest.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Keane Lewis-Potter (Brentford) - Skoraði í tvígang gegn Everton áður en að Tarkowski var rekinn af velli. Klók kaup hjá Brentford á þessum leikmanni í sumar.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Malick Thiaw (Newcastle) - Skoraði gott mark og átti góðan leik er Newcastle náði í stig gegn Englandsmeisturunum.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Jack Rudoni (Coventry) - Steig upp í sex stiga leik gegn Crystal Palace og lagði upp tvö mörk.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Elliot Anderson (Manchester City) - Eini maðurinn sem var með lífsmark í leiknum. Skoraði gott mark og var án efa besti maður vallarins.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Noah Okafor (Leeds United) - Skoraði tvö góð mörk er Leeds niðurlægði Chelsea á Brúnni.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Luca Williams-Barnett (Tottenham) - Táningurinn með mark og stoðsendingu í 2-0 sigri Tottenham á Ipswich. Er nú kominn við samningaborðið við félagið.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Rio Ngumoha (Liverpool) - Lét Dalot líta út fyrir að hafa ekki komið inn á fótboltavöll áður. Fæddur árið 2008 og var meðal bestu manna vallarins í stórsigri á Man Utd.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Florian Wirtz (Liverpool) - Eftir erfiða byrjun á Englandi er Þjóðverjinn að stíga upp. Skoraði frábært mark og var mikið í boltanum í sigri Liverpool á United.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Oli McBurnie (Hull) - Skoraði bæði mörk Hull í óvæntum sigri gegn Brighton. Hefur reynst Hull drjúgur.

Mynd: EPA

Stjórinn: Frank Lampard (Coventry) - Vinnur Palace í sannkölluðum sex stiga leik. Liðinu var spáð falli af flestum miðlum en Coventry situr nú í 14. sæti.

Mynd: EPA


Mynd: BBC
