Fotbolti.net
24.11.26 - 10:00
Kári Snorrason

Fékk 74 gul spjöld áður en fyrsta rauða leit dagsins ljós

Tarkowski er harður í horn að taka.

Tarkowski er harður í horn að taka.

Canon

Mynd: EPA

James Tarkowski fékk í gærkvöldi að líta sitt fyrsta rauða spjald í ensku úrvalsdeildinni er hann braut á Yehor Yarmolyuk í 4-0 tapi Everton gegn Brentford.

Fyrir leik gærkvöldsins hafði enski varnarmaðurinn fengið 74 gul í ensku úrvalsdeildinni án þess að vera rekinn af velli, sem er met í deildinni.
Tarkowski hljóp af velli áður en dómarinn sýndi honum rautt
TENGT EFNI

Tarkowski hljóp af velli áður en dómarinn sýndi honum rautt

Craig Pawson dómari gaf honum upphaflega gult en breytti spjaldinu í rautt eftir VAR-skoðun, Tarkowski beið ekki boðanna og hljóp af velli áður en Pawson gat gefið honum rauða spjaldið.

Tarkowski mun því ekki vera með Everton þegar tekur á móti Liverpool á sunnudaginn í Merseyside-slagnum.

Hér að neðan má sjá brot Tarkowski á Yarmolyuk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.