Fotbolti.net
24.11.26 - 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þrír efnilegir á reynslu hjá GAIS

Snorri Kristins.

Snorri Kristins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír ungir og efnilegir íslenskir leikmenn eru þessa stundina á reynslu hjá sænska félaginu GAIS.

Það eru þeir Snorri Kristinsson (KA), Arnór Atli Aðalbjörnsson (Keflavík), Aron Freyr Heimisson (Stjarnan). Allir eru þeir fæddir árið 2009.

Snorri kom við sögu í tíu deildarleikjum með KA í sumar og báðum bikarleikjunum. Hann er unglingalandsliðsmaður, á að baki 16 unglingalandsleiki og þar af voru þrír sem Snorri lék í nýliðnu verkefni með U19 landsliðinu. Hann er djúpur miðjumaður sem spilar einnig sem hægri bakvörður.

Arnór Atli er hávaxinn framherji, líkamlega sterkur og hefur vakið athygli. Hann kom við sögu í sjö deildarleikjum með Keflavík á tímabilinu.
Aron Freyr er miðjumaður sem skoraði sex mörk fyrir KFG í 2. deild í sumar. Hann lék sömuleiðis með 2. flokki Stjörnunnar og skoraði átta mörk í átta leikjum. Hann æfir nú eingöngu með meistaraflokki. Í fyrra lék hann fjóra leiki með U18 landsliðinu.

Þeir Aron Freyr og Arnór Atli voru í æfingahóp U17 síðasta vetur og höfðu verið í úrtakshópum í U15-U17.

GAIS er í 7. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar þegar ein umferð er eftir. Róbert Frosti Þorkelsson er leikmaður GAIS en hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í byrjun september eftir að hafa átt mjög gott tímabil.
Arnór Atli.

Arnór Atli.

Canon

Mynd: Keflavík

Aron Freyr í baráttunni í leik gegn Þrótti Vogum í sumar.

Aron Freyr í baráttunni í leik gegn Þrótti Vogum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.