25.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Espanyol fær Raducanu (Staðfest)

Raducanu fagnar marki ásamt félögum sínum.


Raducanu fagnar marki ásamt félögum sínum.

Espanyol hefur fengið rúmenska sóknarmanninn Claudiu Raducanu frá Steaua Bucharest fyrir óuppgefið kaupverð. Espanyol gekk frá kaupum á Raducanu í gærkvöldi og skrifaði kappinn undir samning við liðið til vorsins 2007. Einhverjir muna eftir Raducanu en hann var einn besti ef ekki besti leikmaður Steaua sem sló Southampton út úr Evrópukeppni félagsliða í haust og stríddi Liverpool rækilega í sömu keppni.
Espanyol sem situr í næstneðsta sæti La Liga hefur verið að leita að framherja nú í janúar og hefur liðið meðal annars reynt að fá Mario Jardel frá Bolton og Juan Sanchez frá Valencia.
