Fotbolti.net
25.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Cort til Wolves (Staðfest)

Cort til Wolves (Staðfest)
Canon
Wolves hefur keypt sóknarmanninn Carl Cort frá Newcastle á um 2 milljónir punda. Hinn 26 ára gamli Cort kom til Newcastle árið 2000 frá Wimbledon á 7 milljónir punda en hefur verið mikið meiddur og aðeins leikið 24 leiki fyrir Newcastle og fékk hann því að fara til Wolves. Wolves segist hafa keypt Cort á 2 milljónir punda en Newcastle segist hinsvegar hafa selt hann á 1,6 milljón punda svo að kaupverðið er ekki vitað.
Dave Jones stjóri Wolves hefur verið að leita að sóknarmanni í janúar en Wolves hefur aðeins skorað 19 mörk í 22 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.