Fotbolti.net
25.03.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Varafyrirliðinn meiddist eftir samstuð við dómara og spilar ekki gegn Íslandi

Varafyrirliðinn meiddist eftir samstuð við dómara og spilar ekki gegn Íslandi
Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Stephen Eustaquio, varafyrirliði kanadíska landsliðsins, verður ekki með í komandi leikjum og spilar því ekki í vináttulandsleiknum gegn Íslandi á laugardaginn.

Eustaquio lenti í mjög óheppilegu atviki í leik með félagsliði sínu, Los Angeles FC í bandarísku MLS-deildinni.

Hann hljóp á kanadíska dómarann Drew Fischer í leiknum og samstuðið gerði það að verkum að Eustaquio meiddist á fæti og spilar ekki næstu vikurnar.

Eustaquio er 29 ára miðjumaður sem á fjölmarga leiki fyrir Porto og 54 landsleiki (4 mörk) fyrir Kanada.
Kanadíski hópurinn sem mætir Íslandi: Jonathan David skærasta stjarnan
TENGT EFNI

Kanadíski hópurinn sem mætir Íslandi: Jonathan David skærasta stjarnan

Þekktasti leikmaður hópsins hjá Kanada er án vafa Jonathan David, fyrrum framherji Lille sem er í dag hjá Juventus. Það vantar hinsvegar Alphonso Davies, bakvörð Bayern München, sem hefur verið að glíma við erfið meiðsli. Nánar um það hér:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.