25.05.04 - 14:19
Magnús Már Einarsson
Reina gengur til liðs við Villareal (Staðfest)




Markvörðurinn Jose Reina hefur gengið til liðs við Villareal frá Barcelona. Reina sem að er 22 ára hefur verið í láni hjá Villareal síðustu tvö tímabil og lék meðal annars alla 38 leiki liðsins í La Liga á þessu tímabili. Nú hefur hann skrifað undir samning við Villareal gildir þar til í júní 2012. Reina sem að hefur leikið með yngri landsliðum Spánar var talinn líklegur til að vera í spænska landsliðshópnum fyrir EM en svo fór ekki.
Ekki er vitað hvað Villareal hefur borgað en talið er að Barcelona sé að nota Reina sem hluta af kaupverðinu á brasilíska hægri bakverðinum Juliano Belletti sem að fer til Barca í sumar.
