25.05.12 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Martin Caceres til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska stórliðið Juventus hefur keypt úrúgvæska varnarmanninn Martin Caceres frá Sevilla, en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Caceres kom til Juventus á láni undir lok félagaskiptigluggans í janúar og tókst heldur betur að heilla forráðarmenn félagsins upp úr skónum, en liðið varð meðal annars ítalskur meistari á dögunum og komst þá alla leið í úrslitaleik ítalska bikarsins.
Juventus hefur nú fest kaup á Caceres sem var láni frá Sevilla, en hann hefur gert fjögurra ára samning við félagið.
Þetta var í annað sinn sem hann kom til Juventus á lánssamning en hann gerði slíkt hið sama tímabilið 2009-2010, en þá kom hann á láni frá Barcelona og tókst einungis að spila fimmtán leiki fyrir félagið þar sem hann var mikið frá vegna meiðsla.
Þetta ættu að reynast góðar fréttir fyrir liðið, en hann lék fjórtán leiki og skoraði þrjú mörk á tímabilinu.

Heimild: Heimasíða Juventus