Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 25. júlí 2019 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Kolasinac slóst við vopnaða árásarmenn
Sead Kolasinac í leik með Arsenal.
Sead Kolasinac í leik með Arsenal.
Mynd: Getty Images
Mesut Özil og Sead Kolasinac, liðsfélagar hjá Arsenal, lentu í skelfilegri lífsreynslu í dag þegar vopnað gengi í London réðst að þeim er þeir voru saman í bíl.

Félagið hefur staðfest að báðir leikmenn hafi komist óskaddaðir frá atburðinum.

„Við höfum verið í sambandi við báða leikmenn og þeir eru ekki slasaðir," segir í tilkynningu frá Arsenal.

Myndband af atburðinum var birt á samfélagsmiðlum þar sem Kolasinac sést reyna að hrekja mennina burt. Kolasinac var ekki vopnaður, en ræningjarnir vopnaðir hnífum. Kolasinac sýndi mikla hetjudáð.

Hér að neðan er myndbandið sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner