Fotbolti.net
25.07.26 - 10:45
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Kang-In Lee til Atlético (Staðfest)

Kang-In Lee til Atlético (Staðfest)
Canon

Mynd: Atlético Madríd

Atlético Madríd hefur fest kaup á suður-kóreska sóknartengiliðnum Kang-In Lee frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.
Það hefur lengi legið í loftinu að Lee myndi ganga til liðs við Atletico Madrid frá Paris Saint-Germain en félagið náði samkomulagi við leikmanninn fyrir nokkrum vikum.

Atletico gekk frá samkomulagi við PSG í gær og var Lee formlega kynntur til leiks hjá Madrídarfélaginu í dag.

Kaupverðið er 40 milljónir evra og hefur hann skrifað undir fimm ára samning.

Lee er 25 ára og þekkir spænsku deildina vel. Hann gekk ungur til liðs við Valencia og lék einnig með Mallorca áður en PSG keypti hann árið 2023.

Hann varð Evrópumeistari með PSG tvö ár í röð og vann frönsku deildina á hverju tímabili sínu hjá félaginu.

Lee hefur leikið 50 A-landsleiki fyrir Suður-Kóreu og skorað ellefu mörk. Hann lék alla leiki liðsins í riðlakeppni HM í sumar þegar Suður-Kórea féll óvænt úr leik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.