Fotbolti.net
25.07.26 - 15:02
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Riftir við Milan og semur við fyrrum félag Arons Einars

Riftir við Milan og semur við fyrrum félag Arons Einars
Canon

Mynd: EPA

Alsírski miðjumaðurinn Ismael Bennacer hefur komist að samkomulagi við AC Milan um að rifta samningnum, en hann er á leið til Al Gharafa í Katar.
Bennacer er 28 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður. Hann var á mála hjá Arsenal á yngri árum en sló fyrst í gegn með Empoli áður en hann gekk til liðs við Milan árið 2019.

Bennacer hefur verið á láni undanfarin tvö tímabil, fyrst hjá Marseille og síðan Dinamo Zagreb. Nú stendur til að hann rifti samningi sínum við Milan í sameiningu við félagið og haldi til Katar.

Hann er að ganga til liðs við Al Gharafa, fyrrverandi félag Arons Einars Gunnarssonar, en munnlegt samkomulag er sagt í höfn.

Bennacer var óvænt skilinn eftir heima þegar Alsír valdi leikmannahóp sinn fyrir heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Aðeins hálfu ári áður hafði hann verið fastamaður í liði Alsírs í Afríkukeppninni.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.