25.07.26 - 14:43
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle í viðræðum við Milan

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle United hefur boðið 13 milljónir punda í enska varnarmanninn Fikayo Tomori hjá AC Milan.
MilanNews24 segir að stjórnarmenn Milan fari nú yfir tilboðið þótt það sé talið töluvert undir verðmati félagsins.
Milan vill í raun halda hinum 28 ára gamla Tomori en gæti neyðst til að hugsa sinn gang berist tilboð í kringum 16 milljónir punda.
Stjórn Milan verða áfram í sambandi við Newcastle næstu klukkustundir og munu fara fram á að enska félagið hækki tilboð sitt. Verði Newcastle við þeirri beiðni gætu viðræðurnar gengið hratt fyrir sig.
Tomori hefur leikið með Milan í fimm ár og varð ítalskur meistari með félaginu árið 2022. Hann kom upp úr akademíu Chelsea og gekk fyrst til liðs við Milan á láni áður en félagið keypti hann sumarið 2021.