Fotbolti.net
25.07.26 - 14:29
Brynjar Ingi Erluson

Sigur hjá Glódísi í Tókýó

Leikmenn Bayern og Omiya stilltu sér upp fyrir framan stúkuna

Leikmenn Bayern og Omiya stilltu sér upp fyrir framan stúkuna

Canon

Mynd: Bayern München

Hertz
Glódís Perla Viggósdóttir var með fyrirliðabandið er Bayern München vann frækinn 4-1 sigur á Omiya Ardija í vináttuleik í Tókýó í Japan í dag.
Bayern hélt til Japans 21. júlí og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá meðan á ferðinni stóð. Leikmenn liðsins sóttu ýmsa menningarviðburði, heimsóttu Hitachi, einn helsta styrktaraðila félagsins, og kynntu sér japanska matarmenningu á sushi-veitingastöðum.

Ferðinni lauk með æfingaleik gegn RB Omiya Ardija í Tókýó þar sem Bayern vann öruggan 4-1 sigur.

Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar og hafði góðar gætur á sóknarmönnum Omiya.

Bayern heldur nú aftur til Þýskalands og mætir Nurnberg og Paris FC í æfingaleikjum áður en liðið etur kappi við Wolfsburg í þýska Ofurbikarnum 15. ágúst.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir var einnig í eldlínunni í dag. Hún var í byrjunarliði Brondby í fyrsta deildarleik tímabilsins í dönsku úrvalsdeildinni en fór af velli í hálfleik. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.