25.08.04 - 19:17
Elvar Geir Magnússon
Juninho búinn að skrifa undir hjá Celtic (Staðfest)

Búið er að staðfesta kaupa skoska liðsins Celtic á brasilíska miðjumanninum Juninho frá Middlesbrough. Þessi 31.árs leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við Celtic og verður í leikmannahópi liðsins í stórleiknum gegn Glasgow Rangers á sunnudaginn.
Martin O'Neill er að styrkja lið sitt fyrir komandi átök í Meistaradeildinni en þetta eru hans önnur kaup fyrir tímabilið, hin voru á Henri Camara hjá Wolves. Ekki veitir liðinu af nýjum leikmönnum því það missti Henrik Larsson, Johan Mjällby, Liam Miller og Jamie Smith sem léku með því síðasta tímabil.
Juninho á 50 landsleiki að baki fyrir Brasilíu og var í leikmannahópi liðsins sem varð Heimsmeistari 2002. Hann hefur spilað 126 leiki fyrir Middlesbrough en auk þess verið í herbúðum Ituano FC, São Paulo FC, CR Flamengo, CR Vasco da Gama og Atlético de Madrid á Spáni.