PSG er að reyna að kaupa miðjumanninn Tiemoue Bakayoko frá Chelsea.
Bakayoko kom til Chelsea frá Mónakó á 40 milljónir punda en hann er ekki inn í myndinni á Stamford Bridge.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur verið á láni hjá AC Milan og Mónakó undanfarin tvö tímabil.

AC Milan reyndi á dögunum að fá Bakayoko aftur í sínar raðir en samningar náðust ekki.
PSG er nú að reyna að fá Bakayoko en bæði kaup og lán koma til greina.
Athugasemdir