Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 25. október 2020 14:47
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Tryggvi Hrafn með glæsimark í fyrsta leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn Haraldsson byrjar vel hjá Lilleström sem er í toppbaráttu norsku B-deildarinnar.

Skagamaðurinn skipti yfir til Lilleström á dögunum og er að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið þessa stundina. Lilleström leiðir 3-1 gegn Sandnes Ulf undir lok fyrri hálfleiks.

Tryggvi Hrafn skoraði þriðja mark leiksins og kom Lilleström í 2-1. Mínútu síðar bætti samherji hans öðru marki við.

Markið hans Tryggva Hrafns, sem skoraði sex mörk í síðustu þremur leikjum sínum í Pepsi Max-deildinni, er afar laglegt og má sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner