Fotbolti.net
25.11.04 - 17:59
Magnús Már Einarsson

Birgir Rafn til Hauka (Staðfest) (Uppfært)

Birgir Rafn til Hauka (Staðfest) (Uppfært)
Canon
Kantmaðurinn Birgir Rafn Birgisson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka en hann er aftur genginn til liðs við Hafnarfjarðarliðið eftir dvöl hjá HK í sumar þar sem að hann skoraði tvö mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni í sumar. Englendingurinn Ryan Mouter hefur einnig ákveðið að leika með Haukum á næsta tímabili samkvæmt heimasíðu liðsins.
Þá hefur varnarmaðurinn Daníel Einarsson framlengt samning sinn við Hauka um þrjú ár en hann lék fjórtán leiki með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Þetta er styrkur fyrir Hauka sem að misstu í dag miðjumanninn Goran Lukic til Stjörnunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.