Fotbolti.net
26.01.04 - 00:00

Frank de Boer til Rangers (Staðfest)

de Boer bræður

de Boer bræður

Canon
Frank de Boer hefur skrifað undir samning við Rangers út tímabilið. Þessi hollenski varnarmaður var í Glasgow í morgun til að skrifa undir og ganga frá smáatriðum en greinilegt er að samningaviðræður hafa gengið vel því hann var ekki lengi í Galsgow.
Þessi fyrrum leikmaður Ajax og Barcelona var nú á mála hjá Galatasaray í Tyrklandi en kemur nú til liðs við tvíburabróðir sinn Ronald. Ronald hefur hug á að fara til Mið-Austurlanda í sumar þegar samningi hans lýkur við Rangers og hver veit neman Frank sláist með í för?

Hinn 33 ára gamli varnarmaður er kærkomin viðbót í lið Alex McLeish's en hann ætlar að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda tvíburunum áfram á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.