Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. janúar 2020 14:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Tranmere og Man Utd: Ole byrjar með þrjá miðverði
Jones, Maguire og Lindelöf byrja.
Jones, Maguire og Lindelöf byrja.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, byrjar með þrjá miðverði í leik Man Utd gegn Tranmere úr ensku C-deildinni í FA-bikarnum í dag.

Harry Maguire, Victor Lindelöf og Phil Jones byrja allir leikinn. Diogo Dalot og Luke Shaw eru vængbakverðir í fimm manna varnarlínu.

Mason Greenwood byrjar í fremstu víglínu hjá Man Utd ásamt Anthony Martial. Jesse Lingard er fyrir aftan þá.

Tranmere er með sama byrjunarlið og í bikarsigrinum gegn Watford í síðustu viku.

Byrjunarlið Tranmere: Davies, Clarke, Ridehalgh, Caprice, Monthe, Danns, Perkins, Morris, Taylor, Jennings, Ferrier.
(Varamenn: Pilling, Mullin, Gilmour, Payne, Hepburn-Murphy, Wilson, Woods)

Byrjunarlið Man Utd: Romero, Dalot, Lindelöf, Maguire, Jones, Shaw, Matic, Pereira, Lingard, Martial, Greenwood.
(Varamenn: Grant, Bailly, Williams, Fred, Mata, James, Chong)
Athugasemdir
banner
banner