Senegalska stjarnan Sadio Mane er í góðu lagi og við hestaheilsu eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í 2-0 sigrinum á Grænhöfðaeyjum í Afríkukeppninni í gær.
Vozinha, markvörður Grænhöfðaeyja, keyrði út í Mane og lentu þeir í harkalegu samstuði sem hafði þær afleiðingar að báðir lágu í grasinu óvígir.
Vozinha fékk rauða spjaldið og var borinn af velli þar sem hann fékk aðhlynningu en Mane hélt leik áfram. Hann skoraði fyrsta markið með frábæru skoti í slá og inn áður en hélt um höfuð sitt nokkrum mínútum síðar og bað um skiptingu.
Mane fór á spítala þar sem hugað var að honum og er hann við góða heilsu en hann birti mynd af sér með Vozinha á Instagram.
„Ég er í góðu lagi og takk fyrir öll skilaboðin," sagði Mane við myndina.
After colliding on the pitch, Sadio Mane and Vozinha are reunited in hospital and in good spirit 🙏
— GOAL (@goal) January 25, 2022
📸 IG/sadiomaneofficiel pic.twitter.com/AIrGGYAQsb
Athugasemdir