Grindavík fær Dag lánaðan frá FH (Staðfest)


Mynd: Grindavík


Mynd: Grindavík

Grindavík er búið að tryggja sér liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Lengjudeild karla, hinn efnilegi Dagur Traustason er kominn til félagsins á lánssamningi frá FH.
Dagur er fæddur 2005 og verður 18 ára síðar á árinu. Hann skoraði 6 mörk í 13 leikjum að láni hjá ÍH sem lék í 3. deildinni í fyrra.
Dagur hefur staðið sig vel á æfingum og heillað þjálfarateymi Grindavíkur. Hann verður í Grindavík út tímabilið og fær treyju númer 95.
„Ég er mjög ánægður að vera kominn til Grindavíkur. Þetta er flott félag sem ætlar sér stóra hluti í sumar. Hér eru margir flottir leikmenn sem ég vonast til að geta lært mikið af í sumar og orðið að betri leikmanni. Fyrir mig er það mjög spennandi tækifæri að ganga til liðs við Grindavík og vonandi get ég hjálpað félaginu í sumar,“ sagði Dagur í samtali við vefsíðu Grindavíkur.
„Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Dag velkominn til félagsins og hlökkum við til að sjá hann í Grindavíkurtreyjunni í sumar," segir meðal annars í tilkynningu frá félaginu.



