Fotbolti.net
26.03.26 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

„Besti landsliðsmaður sögunnar“

Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson.

Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Reynsluboltarnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson eru sameinaðir á ný í íslenska landsliðshópnum sem mætir Kanada og Haítí í vináttulandsleikjum á laugardag og þriðjudag.

Leikirnir verða spilaðir í Toronto og Fótbolti.net spjallaði við Aron Einar á liðshótelinu. Þar var hann spurður út í endurkomu Gylfa og fagnar hann því að félagi sinn sé mættur aftur í hópinn.

„Ég þekki hann betur en nokkurna annan leikmann sem ég hef spilað með í landsliðinu. Við ólumst upp saman í gegnum þetta á miðjunni. Ég veit hvað hann hefur fram að færa," segir Aron.

„Maður sér bara gæðin og annað á æfingum. Hann er með hugarfar sem margir hérna geta tekið til sín og tekið til fyrirmyndar. Hann er besti landsliðsmaður sögunnar og hann í því formi sem hann er í núna, bara geðveikt."

Leikur Kanada og Íslands hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma á laugardaginn.
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
TENGT EFNI

Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“



Viðtalið við Aron í heild:

Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.