Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 10:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meiðsli Jóa Bjarna ekki alvarleg
Mynd: Víkingur R.
Jóhannes Kristinn Bjarnason, Ármann Ingi Finnbogason og Aron Elís Þrándarson glíma við smávægileg meiðsli og verða líklega ekki með þegar Víkingur mætir Vestra í Meistarakeppni KSÍ á sunnudag.

Jóhannes Kristinn átti að vera með U21 landsliðinu sem mætir Eistlandi í dag og svo Frakklandi ytra en hann fann fyrir smá eymslum, dró sig úr landsliðsverkefninu og er tæpur fyrir bikarleikinn gegn Fram eftir rúma viku.

„Hann fann fyrir smá stífleika, smávægileg tognun ef þetta nær að vera það."

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir við Fótbolta.net að þeir Ármann og Aron séu á svipuðum stað og Jóhannes, meiðsli þeirra séu ekki alvarleg. Þeir voru allir í liði Víkings sem mætti FH í æfingaleik síðasta laugardag.

Framarinn Freyr Sigurðsson var kallaður inn í U21 hópinn í stað Jóhannesar.

U21 tekur á móti Eistlandi klukkan 16:00 á AVIS vellinum og leikur Víkings og Vestra hefst klukkan 14:00 á sunnudag og fer fram á Víkingsvelli.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner