26.05.04 - 13:25
Elvar Geir Magnússon
Andy Griffin til Portsmouth (Staðfest)




Portsmouth hefur gengið frá fyrstu kaupum sínum í sumar en það er varnarmaðurinn Andy Griffin sem kemur frá Newcastle. Þessi 25 ára bakvörður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Portsmouth. Hann kemur á frjálsri sölu.
Griffin gekk til liðs við Newcastle frá Stoke árið 1998 fyrir 1,5 milljónir punda en vegna meiðsla lék hann einungis 97 leiki fyrir félagið. Á síðasta tímabili lék hann aðeins átta sinnum og gat t.d. ekkert verið með frá október þar til leiktíðinni lauk.
Á myndinni má sjá Griffin í kröppum dansi í leik gegn Chelsea.
Á myndinni má sjá Griffin í kröppum dansi í leik gegn Chelsea.
