26.05.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
AC Milan fær ungan markvörð frá Brasilíu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska stórliðið AC Milan hefur fest kaup á brasilíska markverðinum Gabriel sem leikur fyrir Cruzeiro í heimalandinu.
Gabriel, sem er 19 ára gamall, hefur þegar spilað fyrir U20 ára landslið Brasilíu, en hann kemur úr unglingastarfi Cruzeiro.
Talið er líklegt að hann verði þriðji markvörður Milan á næsta tímabili, en Flavio Roma hefur yfirgefið félagið og því standa eftir ítölsku markverðirnir Christian Abbiati og Marco Amelia.
Þetta er því þriðji leikmaðurinn sem Milan fær til sín í sumar, en fyrir hafði félagið fengið þá Riccardo Montolivo frá Fiorentina og Bakaye Traore frá Nancy í Frakklandi.

Heimild: Goal.com