Fotbolti.net
26.05.12 - 16:22
Ívan Guðjón Baldursson

Claudio Pizarro til Bayern (Staðfest)

Claudio Pizarro til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Claudio Pizarro er búinn að skrifa undir eins árs samning við Bayern Munchen en samningur hans við Werder Bremen rennur út í sumar.

Þessi perúvski sóknarmaður er búinn að skrifa undir eins árs samning við stórveldið og er þetta í annað sinn sem hann fer til Bayern.
PIzarro, sem er 33 ára gamall, spilaði 174 leiki fyrir Bayern á milli 2001 og 2007, en þá fór hann til Chelsea.

,,Við erum ánægðir með að hafa fengið Claudio Pizarro til liðsins, hann er reynslumikill og gríðarlega hættulegur sóknarmaður,\" sagði Jupp Heynckes, þjálfari Bayern.

Pizarro mun væntanlega leysa Ivica Olic af á bekknum hjá Bayern en Pizarro er fjórði leikmaðurinn sem Bayern fær til sín í sumar. Hinir þrír eru Xherdan Shaqiri, Tom Starke og Dante.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.