Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. júní 2019 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Juventus vill losa sig við Higuain
Mynd: Getty Images
Ítalíumeistarar Juventus bíða nú eftir almennilegu tilboði í argentíska framherjann Gonzalo Higuain sem endaði tímabilið á láni hjá Chelsea.

Higuain er í eigu Juventus en spilaði með AC Milan fyrir áramót áður en að hann skipti yfir til Englands.

Higuain er samningsbundinn Juventus til 2021 en hann er ekki í plönum Maurizio Sarri, nýráðins þjálfara liðsins.

Félög í Kína eru sögðu áhugasöm um leikmanninn en Higuain telur sig geta fengið stærri klúbb á þessum tímapunkti ferilsins. Leikmaðurinn er 31 árs gamall.

Juventus er sagt vilja krækja í Mauro Icardi í sumarglugganum en hann spilar með Inter Milan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner