26.07.04 - 13:54
Klinsmann tekur við þýska landsliðinu (Staðfest)




Jurgen KLinsmann hefur verið ráðinn stjóri þýska landsliðsins. Hinn 39 ára gamli þjóðverji skrifaði undir tveggja ára samning sem gildir framyfir HM 2006 sem einmitt fer fram í Þýskalandi en liðið fær sjálfkrafa þáttökurétt vegna þess.
Klinsmann tekur við af Rudi Voller sem sagði af sér eftir afleitt gengi þýskra á EM í sumar. Klinsmann vann HM sem leikmaður árið 1990 en aðstoðarmenn hans verða Holger Osiek og hinn kunni Oliver Bierhoff.
