26.08.04 - 12:32
Waterreus til Manchester City (Staðfest)




Manchester City hafa fest kaup á hollenska markmanninum Ronald Waterreus. Hann kemur á fimm mánaða samningi en Waterreus er 34 ára gamall. Hann getur spilað með liðinu gegn Charlton á laugardaginn en líkega er hann hugsaður sem varamaður fyrir David James.
Waterreus hefur verið án félags síðan PSV Eindhoven létu hann fara í sumar. Waterreus er enn ein lausnin við markmannsvandamálum Kevin Keegan en Geert De Vlieger og Nicky Weaver eiga báðir við alvarleg meiðsli að stríða.
