26.11.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Forssell fram til vors hjá Birmingham. (Staðfest)




Sóknarmaðurinn Mikael Forssell mun vera á láni hjá Birmingham til loka leiktíðarinnar frá Chelsea en þetta staðfestu talsmenn Birmingham í dag. Forssell sem er 22 ára Finni hefur skorað fimm mörk í níu leikjum fyrir Birmingam á tímabilinu og verið einn besti ef ekki besti maður liðsins. Reyndar sögðu talsmenn Chelsea í seinustu viku að Forssell gæti verið lengur hjá Birmingham en nú er búið að staðfesta það. Fyrri lánssamningur hans átti að gilda fram í janúar en mörg lið eru sögð áhugasöm á að kaupa kauða næsta sumar. Menn hjá Birmingham eru þar á meðal og ætla að reyna að kaupa Forssell af Chelsea næsta sumar.
