Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. nóvember 2020 21:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tók Balogun 37 sekúndur að skora
Mynd: Getty Images
Folarin Balogun, oft kallaður Flo, skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið Arsenal í kvöld.

Hann var að leika sinn annan leik með félaginu, fyrsti leikurinn var gegn Dundalk fyrir mánuði síðan. Balogun er nítján ára Englendingur sem er uppalinn hjá Arsenal en fæddur í New York.

Balogun kom inn á 82. mínútu gegn Molde og skoraði á 83. mínútu, 37 sekúndum síðar. Skot Balogun var hans fyrsta á markið með Arsenal. Emile Smith Rowe átti stoðsendinguna.

Leikurinn endaði með 3-0 sigri Arsenal og er liðið komið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner