Fotbolti.net
27.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Roque Junior til Siena (Staðfest)

Roque Junior til Siena (Staðfest)
Canon
Ítalska liðið Siena hefur fengið Brasilíska varnarmanninn Roque Junior að láni út þessa leiktíð frá AC Milan. Junior sem er 27 ára gekk til liðs við Leeds á láni út þessa leiktíð frá AC Milan í haust en í seinustu viku ákvað enska liðið að láta Junior fara eftir að hann hafði ekki fundið sig hjá liðinu og aðeins leikið sjö úrvalsdeildarleiki. Junior er sigursæll leikmaður, sigraði HM með Brasilíumönnum árið 2002 og Meistaradeildina í fyrra með AC Milan og mun reynsla hans hjálpa nýliðum Siena í Serie A þar sem að liðið situr í tíunda sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.