Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fös 27. janúar 2023 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Di Zerbi um Caicedo: Talaði við hann eins og ég væri faðir hans
Moises Caicedo.
Moises Caicedo.
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Brighton, var auðvitað spurður út í miðjumanninn Moises Caicedo á fréttamannafundi í dag.

Caicedo hefur leikið afar vel með Brighton á tímabilinu en það voru fréttir um það í dag að Arsenal hefði gert 60 milljón punda tilboð í hann.

Brighton hafnaði tilboðinu en De Zerbi telur það best fyrir leikmanninn að klára tímabilið með Brighton.

„Ég talaði við hann á miðvikudaginn og sagði honum mína skoðun," sagði De Zerbi.

„Það er alltaf erfitt að breyta til á miðju tímabili. Það er mikilvægt að hann verði með okkur næstu fjóru mánuðina. Hann er rólegur, góður náungi."

„Ég talaði við hann líkt og ég væri faðir hans, ekki þjálfari hans. Mitt starf er líka að hjálpa honum með því að gefa honum góð ráð," sagði Ítalinn.
Athugasemdir
banner
banner