27.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Hrafn til ÍBV (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
ÍBV hefur samið markvörðinn Hrafn Davíðsson en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Hrafn sem að er tvítugur kemur frá Fylki og kemur í stað Igors Bjarna Kostic sem að gekk til liðs við færeyska liðsins Skála fyrir skömmu. Hrafn mun hann líklega verða varamarkvörður ÍBV næsta sumar en hinn síungi Birkir Kristinsson mun standa á milli stanganna. Birkir sem að er 39 ára gæti þess vegna verið faðir Hrafns svo mikill aldursmunur er á milli þeirra og er ljóst að þessi fyrrum landsliðsmarkvörður Íslendinga ætti að geta kennt Hrafni ýmislegt.
