Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 13:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sindri birtir áhugavert myndband - „Dæmi hver fyrir sig"
Lengjudeildin
Sindri Þór Guðmundsson.
Sindri Þór Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Þór Guðmundsson, leikmaður Grindavíkur, birti áhugavert myndband á samfélagsmiðlinum TikTok í gær.

Þar sýnir hann frá því hvernig fótur hans lítur út eftir tæklingu sem hann varð fyrir í 1-1 jafntefli gegn Vestra í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  1 Grindavík

Er hann mjög bólginn en leikmaður Vestra fékk ekki spjald fyrir tæklinguna.

Sindri sýnir myndband af tæklingunni og einnig tæklingu sem hann átti sjálfur í leik með Keflavík fyrir nokkrum árum. Fyrir þá tæklingu fékk hann rautt spjald en sami dómari var með leikina tvo, Þórður Þorsteinn Þórðarson.

„Dæmi hver fyrir sig," skrifar Sindri við myndbandið sem má sjá hér fyrir neðan.

@sindri.thor Dæmi hver fyrir sig #íslenskttiktok #fótbolti #íslenskt ? upprunalegt hljóð - Sindri Þór

Slapp
banner
banner
banner