27.05.04 - 13:24
Elvar Geir Magnússon
Danny Pugh til Leeds (Staðfest)




Leeds United er búið að fá Danny Pugh frá Manchester United og hefur leikmaðurinn skrifað undir tveggja ára samning á Elland Road. Kevin Blackwell framkvæmdarstjóri Leeds sagði þetta: "Danny er ungur og efnilegur leikmaður og hann hefur hungrið til að ná langt. Þennan leikmann vildi ég fá til félagsins."
Pugh er 21.árs og lék aðeins sjö leiki með aðalliði Manchester United á tveimur árum á Old Trafford. Pugh er fjölhæfur leikmaður, getur spilað allstaðar á miðjunni og vinstra meginn í vörninni. "Með því að fá Danny þá getur James Milner sem er réttfættur hætt að spila á vinstri kantinum og farið á þann hægri eða jafnvel í sóknina." sagði Blackwell.
