Fotbolti.net
27.05.04 - 14:26
Magnús Már Einarsson

Lucio til Bayern Munchen (Staðfest)

Lucio til Bayern Munchen (Staðfest)
Canon
Bayern Munchen hefur staðfest kaup sín á brasilíumanninnum Lucio frá Bayer Leverkusen. Þessi sterki varnarmaður sem að er 26 ára hefur einnig samþykkt þriggja ára samning við Bayern. Kaupverðið er um 8 milljónir punda og mun Lucio fara til Bayern í sumar.
Þar með er Lucio önnur kaup Bayern Munchen fyrir sumarið en íranski sóknarmaðurinn Vahid Hashemian mun einnig koma frá Bochum. Þá tekur Felix Magath stjóri Stuttgart við stjórastólnum hjá Bayern Munchen af Ottmar Hitzfeld.

Fleiri breytingar gætu verið væntanlegar hjá Bayern Munchen því að Michael Ballack gæti verið á leið til Barcelona eins og við höfum reyndar þegar greint frá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.