Fotbolti.net
27.06.04 - 13:13

Caldwell til Sunderland (Staðfest)

Caldwell (til vinstri)  fagnar hér marki með Gary Speed

Caldwell (til vinstri) fagnar hér marki með Gary Speed

Canon
Sunderland hafa fengið varnarmanninn Steve Caldwell til sín en hann var á mála hjá Newcastle. Samningurinn hans var runninn út og því fengu þeir hann frítt. Hinn 23 ára gamli varnarmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Sunderland og er fyrsti leikmaðurinn sem fer á mlli erkióvinanna síðan síðan Lee Clark fór árið 1997.
"Ég ætla að einbeita mér að því að koma Sunderland aftur upp í Úrvalsdeildina" sagði Caldwell. "Þetta er stór klúbbur sem langar í Úrvalsdeildina, þangað sem liðið á heima." bætti hann við.

Caldwell er fimmti leikmaðurinn sem gengur tiol liðs við Sunderland í sumar en hinir eru: Carl Robinson, Stephen Elliott, Liam Lawrence og Dean Whitehead.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.