27.07.04 - 07:03
Elvar Geir Magnússon
Mihalis Kapsis til Bordeaux (Staðfest)




Gríski landsliðsmaðurinn Mihalis Kapsis er kominn í franska boltann og hefur skrifað undir samning við Bordeaux. Þessi varnarmaður var einn af lykilmönnum í landsliði Grikklands sem hrósaði óvænt sigri í Evrópukeppni landsliða í sumar. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við liðið.
Kapsis er 30 ára og á 15 landsleiki að baki. Hann er keyptur frá AEK Aþenu þar sem hann hefur leikið allan sinn feril, kaupverð ekki gefið upp. "Það er mér mikill heiður að fá að spila fyrir sögufrægt lið eins og Bordeaux. Ég þekki vel til margra leikmanna liðsins og ég er stoltur af því að fá að vera hluti þess."
