Fotbolti.net
27.07.04 - 09:25
Pétur Kristjánsson

Josemi til Liverpool (Staðfest)

Josemi orðinn rauður

Josemi orðinn rauður

Canon
Rafa Bentiez, stjóri Liverpool hefur staðfest að Josemi hefur skrifað undir samning við þá rauðklæddu. Þetta eru fyrstu kaup Spánverjans og jafnvel þau síðustu áður en félagsskiptaglugganum verður lokað.
Hægri bakvörðurinn, sem einnig getur spilað miðvörð, hefur verið í viðræðum við Liverpool síðustu daga og hefur nú verið gengið frá skiptunum. Kaupverðið er tæplega 2 milljónir punda.

"Josemi skrifaði undir í dag," sagði Benitez. "Ég þekki þennan leikmann, hann er góður í vörn, góður í loftinu og á eftir að styrkja liðið mikið. Það er mikilvægt fyrir mig að hafa góða leikmenn, það skiptir ekki máli hvaða þjóðerni þeir hafa. Kannski þekki ég bara spænska markaðinn betur en við erum með útsendara um allan heim, þannig að ef að góður leikmaður býðst okkur þá kaupum við hann.

Okkur vantaði framherja og miðvörð þannig að ég er ekki að fara á taugum. Ég vil vinna með liðinu og ég mun tala við útsendarana og stjórnarmennina og taka ákvörðum um framhaldið.
"

Liverpool lagði Celtic í Bandaríkjunum síðastliðna nótt, 5-1 og opnaði Djibril Cisse markareikning sinn með tveimur mörkum. Hin mörkin skoruðu Michael Owen, John Arne Riise og Stephane Henchoz. En fyrir Celtic skoraði hinn ungi Craig Beattie.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.