Fotbolti.net
27.07.04 - 20:50

Carvalho til Chelsea. (Staðfest)

Ricardo Carvalho

Ricardo Carvalho

Canon
Chelsea hafa gengið frá kaupunum á Ricardo Carvalho frá Porto eftir að varnarmaðurinn knái samþykkti 3 ára samning við Chelsea. Kaupverðið er talið vera 19.85 milljónir punda.
Þessi portúgalski varnarmaður fór í læknisskoðun fyrr í dag og gekk frá skilmálum samningsins eftir samræður Peter Kenyon, forstjóra Chelsea, og umboðsmanns leikmannsins. Þessi 26 ára gamli leikmaður mun fljúga út til Bandaríkjanna með Kenyon til þess að hitta lið Chelsea sem er að ferðast um Bandaríkin í æfingarferð.

Real Madrid voru sagðir hafa áhuga á Carvalho, en Mourinho þjálfaði hann hjá Porto á seinustu leiktíð. Lengi hefur verið vitað um áhuga Mourinho á að fá þennan varnarmann til liðs við sig eftir að Marcel Desailly ákvað að fara frá klúbbnum.
Carvalho er núna annar varnarmaðurinn frá Porto sem gengur til liðs við Chelsea í sumar, en Paulo Ferreira var keyptur fyrr í sumar á 13.8 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.