Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. júlí 2022 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alex Smithies æfir með Bournemouth - Lössl farinn
Í leik með Cardiff
Í leik með Cardiff
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur staðfest að markvörðurinn Alex Smithies sé að æfa með liðinu. Smithies er 32 ára gamall og á að baki rúmlega 400 leiki í ensku neðri deildunum.

Hann er uppalinn hjá Huddersfield og hefur einnig spilað með QPR og Cardiff.

Hann var leikmaður Cardiff á árunum 2018-2022 en samningur hans við félagið rann út í sumar og er hann í leit að nýju félagi. Á síðasta tímabili lék hann sextán leiki með liðinu í Championship.

Smithies lék á sínum tíma 15 leiki fyrir yngri landslið Englands.

Scott Parker, stjóri Bournemouth, greindi frá því á dögunum að Jonas Lössl, sem hafði æft með Bournemouth í Portúgal væri ekki lengur að æfa með liðinu.

Bournemouth fór upp úr Championship í vor og er Mark Travers aðalmarkvörður liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner