Fotbolti.net
27.08.04 - 06:34

Wanchope til Malaga (Staðfest)

Wanchope til Malaga (Staðfest)
Canon
Paulo Wanchope er kominn til Spánar og spilar hann með Malaga næstu árin. Manchester City samþykktu að selja hann i gær en hann er 28 ára gamall Kosta Ríka maður. Malaga þurftu að borga 500 þúsund pund fyrir Wanchope sem er búinn að spila á Englandi í 7 ár.
Hann kom fyrst til Derby þegar þeir voru í úrvalsdeildinni og lék þar í 3 ár. Hann fór svo til City og það var Joe Royle sem keypti hann þangað. Wanchope skoraði 29 mörk í 76 leikjum fyrir liðið og var han ávallt mjög vinsæll leikmaður meða stuðningsmannanna.

Búist er við því að Kevin Keegan leiti nú að nýjum sóknarmanni og þá er egypski framherjinn Mido oft nefndur til sögunnar en hann er fáanlegur að láni frá franska liðinu Marseille.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.