27.08.04 - 12:53
Gunnar Heiðar til Halmstad (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson framherji ÍBV og markahæsti leikmaður efstu deildar karla er á leiðinni til Halmstad í Svíþjóð. Hann mun spila sinn síðasta leik fyrir Eyjamenn um helgina þegar liðið tekur á móti Víingum.
Halmstad leikur í sænsku úrvalsdeildinni og er þar í toppsætinu. Búið er að ákveða kaupverðið en það verður þó ekki gefið upp fyrr en eftir leik Víkins og ÍBV um helgina. Talið er að það sé um 6 milljónir íslenskra króna en það hefur þó ekki verið staðfest.
ÍBV mun senda frá sér fréttatilkynningu um kaupverðið, líklega á mánudaginn. ÍBV hafði áður hafnað tilboði frá Djurgarden upp á tæpar 2 milljónir.
Frétt fengin hjá heimasíðunni Eyjar.net
ÍBV mun senda frá sér fréttatilkynningu um kaupverðið, líklega á mánudaginn. ÍBV hafði áður hafnað tilboði frá Djurgarden upp á tæpar 2 milljónir.
Frétt fengin hjá heimasíðunni Eyjar.net
