27.08.04 - 20:00
Elvar Geir Magnússon
Allback til Hansa Rostock (Staðfest)




Sænski sóknarmaðurinn Marcus Allback er kominn í raðir þýska liðsins Hansa Rostock frá Aston Villa. Þessi 31.árs leikmaður kom í enska boltann frá Heerenveen fyrir 2 milljónir punda árið 2002 en er nú kominn í þýsku Bundesliguna og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Rostock.
Allback var einungis 16 sinnum í byrjunarliðinu í ensku úrvalsdeildinni þau tvö ár sem hann var þar. "Ég sé ekki eftir að hafa farið í Aston Villa. Þetta er frábært félag og allir þar, stuðningsmennirnir með taldir, hafa verið mér frábærir. Mér þykir leiðinlegt að þetta hafi ekki gengið betur."
