Ragnar Sigurðsson var í byrjunarliði FCK og spilaði allan leikinn þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Vejle á útivelli í þriðju umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.
FCK komst tveimur mörkum yfir en Vejle náði að koma til baka og bjarga jafnteflinu. Kjartan Henry Finnbogason var ekki í leikmannahópi Vejle í dag. Stigið í dag var það fyrsta hjá FCK á leiktíðinni.
FCK komst tveimur mörkum yfir en Vejle náði að koma til baka og bjarga jafnteflinu. Kjartan Henry Finnbogason var ekki í leikmannahópi Vejle í dag. Stigið í dag var það fyrsta hjá FCK á leiktíðinni.
Hörður Björgvin Magnússon var þá í byrjunarliði CSKA Moskva sem tapaði á heimavelli í grannaslag gegn Lokomotiv Moskva.
Hörður spilaði allan leikinn en Arnór Sigurðsson kom inn af bekknum þegar þrettán mínútur voru til leiksloka.
Leiknum lauk með 1-0 sigri Lokomotiv en leikið var í níundu umferð. CSKA er í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum frá toppsætinu.
Athugasemdir