Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. september 2021 10:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: 433.is 
Kristinn Freyr fundaði með Breiðabliki
Kristinn Freyr
Kristinn Freyr
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Greint er frá því á 433.is að Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, hafi fundað með Óskari Hrafni Þorvaldssyni, þjálfara Breiðabliks. Samkvæmt þeim heimildum fór sá fundur fram í síðustu viku.

Samningur Kristins við Val rennur út á næstu dögum og eru talsverðar líkur á því að hann yfirgefi Val og semji við annað félag.

Kristinn byrjaði á bekknum gegn Fylki í lokaumferðinni og spilaði einungis síðasta korterið í leiknum.

„Það er voða lítið sem ég get sagt. Það er ekkert fréttnæmt að frétta af mér, ekki neitt," sagði Kristinn við Fótbolta.net síðasta miðvikudag.

Tímabilið hjá Val voru mikil vonbrigði en liðið endaði í fimmta sæti deildarinnar og féll úr leik í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner