Fotbolti.net
27.10.04 - 15:27
Hafliði Breiðfjörð

Zoran Daníel Ljubicic tekur við Völsungum (Staðfest)

Zoran Daníel ásamt Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar eftir bikarúrslitaleikinn.

Zoran Daníel ásamt Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar eftir bikarúrslitaleikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Zoran Daníel Ljubicic sem var fyrirliði í bikarmeistaraliði Keflavíkur í sumar hefur tekið við þjálfun meistaraflokks Völsungs.  Fótbolti.net greindi frá því um helgina að Zoran hafi átt í viðræðum við félagið en hann mun verða spilandi þjálfari á Húsavík.

Zoran er með C-stigs þjálfaragráðu KSÍ og stefnir á að ljúka E-stiginu í vetur. Hann hefur verið hér á landi í 13 ár og er íslenskur ríkisborgari.  Zoran hefur leikið með HK, ÍBV, Grindavík og nú síðast Keflavík.


Sjá einnig:
Zoran Daníel Ljubicic í viðræðum við Völsung

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.